FJÖR Í FÓTBOLTA

Tilkynningarsíða 8.flokks karla og kvenna í knattspyrnu.

26.02.2011 08:15:58 / 8flir

Vegna veikinda þjálfara þá fellur æfing niður í dag.

Kæru foreldrar.

Vegna veikinda hjá Sigurði og sjálfum mér þá verðum við að fella niður æfingu í dag.

Vonandi sjá sem flestir þetta. Ef þið þekkið einhvern sem er nýbyrjaður, vinsamlegast komið skilaboðunum áfram á viðkomandi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2011 16:19:38 / 8flir

Æfingar og myndir.

Sigurður Þór Arnarsson aðstoðarþjálfari mun sjá um 8. flokkinn næstu vikur vegna anna hjá mér. Reykjavíkurmót eldriflokka eru hafin og mikið af leikjum því um helgar. Æfingar flokksins breytast ekki og verða áfram í Breiðholtsskóla kl 09:00 til 10:00..... Ef það eru einhverjar spurningar þá getið þið sent mér e.mail irknattspyrna@hotmail.com eða hringt í 891-6320.
 
Myndir af síðustu æfingu eru komnar á síðuna hér til hægri. Myndirnar eru settar í myndasöfn.

Sjáumst fljótlega.

Dóri yfirþjálfari.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2010 17:22:23 / 8flir

Gleðileg jól og farsæltkomandi ár.


Gleðileg jól og farsæltkomandi ár. Næsta æfing verður laugardaginn 8. janúar 2011.

Með kveðju
Dóri, Siggi og Danni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2010 18:06:35 / 8flir

Foreldraskemmtun næsta föstudags kvöld / Látið foreldra vita!

Foreldrakvöld knattspyrnudeildar

Skemmtikvöld á vegum knattspyrnudeildar ÍR verður haldið í ÍR heimilinu, efri hæð, föstudagskvöldið 12. nóvember nk.
Hefst fjörið klukkan 21:00.
Aðgangseyrir aðeins 500 krónur, posi á staðnum.

Halli Reynis kemur og heldur uppi stuðinu eins og honum einum er lagið og ætlum við að dansa og hafa gaman til 01:00.

Léttar veitingar á staðnum, 18 ára aldurstakmark.

Með fótboltakveðju, Skemmtinefndin


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2010 00:07:24 / 8flir

Skiptimarkaður ÍR

Skiptimarkaður ÍR 29.október

 

http://www.ir.is/Media/w150/515f587020e5e64.jpgFöstudaginn 29.október kl.16:00-18:30 verður skiptimarkaður í gangi uppi á 2.hæð ÍR heimilis.

Þangað geta allir ÍR –ingar komið með allt sem tilheyrir íþróttaiðkun innan ÍR og komið því í verð og fundið sér annað á hagstæðu verði. Þetta geta verið keppnisbúningar, æfingasett, skíði og allur sá búnaður sem þeirri iðkun fylgir, dansdress, skór, sokkar, júdó og TKD gallar og hvað eina. Endilega kíkið inn í skápa, geymslur og bílskúra og komið með þetta og þið hin komið og skoðið úrvalið. Ath. að hver og einn verðsetur sína vöru og sér sjálfur um viðskiptin. Engir posar eru á staðnum og því þarf fólk að hafa reiðufé á sér.

Nýtum endilega þetta tækifæri, þessa ágætu leið til að halda kostnaði við íþróttaiðkun í lágmarki.

Heitt á könnunni.

Með kveðju
Starfsmenn skrifstofu ÍR.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2010 01:49:53 / 8flir

Æfingar á nýju knattspyrnutímabili 2010-2011.

Kæri foreldri / forráðamaður

Nú fara æfingar að hefjast aftur hjá knattspyrnudeildinni og því vill ég bjóða ykkar barn velkomið í 8.flokkinn. Flokkurinn hefur æfingar næstkomandi laugardag 8. okt kl 09:00 í Breiðholtsskóla.  Æfingatafla knattspyrnudeildar er kominn inn á www.ir.is .

Ef þið hafið einhverjar spurningar um starfið þá getið þið sent mér vefpóst á irknattspyrna@hotmail.com

Með knattspyrnukveðjum
Halldór Þ. Halldórsson...


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2010 15:50:16 / 8flir

ATLANTISMÓT 2010..

Við munum senda A-B og 2x C.lið til keppni í Atlantismótið. Mótsgjaldið er 1000kr og það greiðist á mótsstað. A og C.liðin eiga að mæta kl 08:50 á Tungubakka en B.lið mætir kl 12:45... Hér fyrir neðan er vefslóð á leikjadagskrána og þar er hægt að sjá hvenær leikirnir eru og hvenær mótinu er lokið. Ég vill hvetja foreldra til að mæta í einhverju bláu og með góða skapið meðferðis. Við skulum gera þetta mót ógleymanlegt fyrir strákana og styðja vel við bakið á þeim. Þetta er fyrsta mótið þeirra og ef til vill YKKAR,  því er  mikilvægt að við stöndum okkur vel í því að gera mótið sem skemmtilegast.
Leikirnir eru ekki aðalatriðið heldur upplifunin af mótinu. Ekki spyrja strákana um úrslit í leikjunum, spurjið frekar hvort það hafi ekki verið gaman og hvernig þeir stóðu sig. Við sjáumst hress á vellinum og munum að styðja liðið en ekki einstaklingana...GANGI YKKUR VEL. 

1. Alexander Örn Ragnarsson  /  C.hópur

2. Andri Ásberg Bjarkason  /  A.hópur

3. Andri Freyr Ármannsson  /  C.hópur

4. Aron Kristinn  /  C.hópur
5. Aron Snær Maack  /  B.hópur

6. Brynjar Haraldsson  /  C.hópur

7. Davíð Leó Friðriksson  /  B.hópur

8. Dagur Snær Heimisson  /  B.hópur

9. Daníel Ingi Ragnarsson  /  C.hópur

10. Eyjólfur Andri Björnsson  /  C.hópur

11. Eyþór Örn Kristinsson  /  C.hópur

12. Gestur Máni Hlynsson  /  B.hópur

13. Helgi Valur Wedholm Gunnarsson  /  A.hópur

14. Hjörtur Emir Mazouz  /  C.hópur

15. Jónbjörn Orri Sigurðsson  /  A.hópur

16. Kristján Daði Runólfsson  /  C.hópur

17. Logi Snær Wíum  /  A.hópur

18. Óliver Elís Hlynsson  /  B.hópur

19. Viktor Freyr Viðarsson  /  A.hópur

20. Vilhjálmur Andri Vilhjálmsson  /  C.hópur

21. Egill Skorri Vigfússon  /  A.hópur






http://afturelding.is/iw_cache/2163_Sunnudagur_8flokkur.pdf

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2010 20:46:41 / 8flir

ATLANTISMÓT 8.flokks karla 2010

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Næstkomandi sunnudag munum við taka þátt í Atlantismóti Aftureldingar. Liðin þurfa að mæta á sitthvorum tímanum og því miður getum við ekki gefið út liða niðurröðun, né leikjaprógramm fyrr en á morgun laugardaginn 14.ágúst. Við verðum með æfingu á ÍR-velli kl 13:00 á morgun laugardag og eftir þá æfingu ætlum við að gefa liðið út. Það eina sem við vitum er að A-C.lið keppa kl 09:00-12:00 og B-D.lið spila á milli kl 13:00-16:00..

Þeir sem hafa staðfest þátttöku eru:
Helgi Valur,
Andri Ásberg,
Gestur Máni,
Eyjólfur Andri,
Viktor Freyr,
Aleksander Örn,
Davíð Leó,
Brynjar Máni,
Eyþór Örn,
Vilhjálmur Andri,
Jónbjörn Orri,
Kristján Daði,
Dagur Snær,
Logi Snær,
Hjörtur,
Oliver Elís,
Aron Snær,



Leon, Jóhannes Agnar komast ekki.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2009 19:24:02 / 8flir

Tilkynning frá knattspyrnudeild.

Kæru foreldrar/forráðamenn.

 

Á morgun fimmtudaginn  1. október  mun knattspyrnudeild Íþróttafélags Reykjavíkur hefja nýtt æfinga og keppnistímabil. Æfingatöflur hafa verið gefnar út og að auki ætti bæklingur um æfingatíma að vera kominn inná hvert heimili í 109 hverfinu. Það verða smávægilegar breytingar á starfi knattspyrnudeildarinnar þetta árið, þá aðallega tilfæringar á þjálfurum og einnig koma tveir nýjir þjálfarar til starfa. Þjálfarar knattspyrnudeildarinnar eru allir með þá menntun sem KSÍ krefst af félaginu að þeir hafi skv. leyfisreglugerð KSÍ.

 

Helstu breytingar hjá kvennaflokkum eru:

Magnús Bogason tekur við þjálfun 8 og 7. flokks kvenna af Halldóri og Tönju.

Tanja Nicolic heldur áfram með 6. flokk kvenna.

Bryndís Jóhannesdóttir heldur áfram með 5.flokk kvenna.

Halldór Þ. Halldórsson tekur við þjálfun 4.flokks kvenna af Úlfhildi Ösp Indriðadóttur.

Úlfhildur Ösp Indriðadóttir tekur við þjálfun 3.flokks kvenna af Friðriki Egilssyni.

 

Helstu breytingar hjá karlaflokkunum eru:

Árni Guðmundsson tekur við þjálfun 7.flokks karla af Sigurði Sigurþórssyni.

Óli Sigurjónsson tekur við þjálfun 6. flokks karla af Halldóri Þ. Halldórssyni.

Engilbert Friðfinnson heldur áfram þjálfun 5.flokks karla.

Friðrik Egilsson tekur við þjálfun 5.flokks karla af Magnúsi Bogasyni.

Halldór Þ. Halldórsson heldur áfram þjálfun 4.flokks karla.

Eiður Ottó Bjarnasson heldur áfram þjálfun 3.flokks karla.

 

Í þessum töluðu orðum er verið að ræða við aðstoðarþjálfara og vonandi verða þeir klárir fyrir helgina en það verða klárlega breytingar í nokkrum flokkum.

 

Við viljum minna ykkur á frístundakortin og klára að ráðstafa styrknum á rafrænni Reykjavík sem fyrst, http://rafraen.reykjavik.is en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu ÍR í síma 5877090 til þess að fá aðstoð.....

 

Ný vefsíða (www.irsida.is ) var tekin í gagnið um síðustu áramót og því við hvetjum ykkur til að fylgjast með henni reglulega.  Síðan en ekki síst með bloggsíðum flokkana, það er gott að vista þær í favorit á vafranum. Á bloggsíðum flokkana eru flestar tilkynningar um málefni flokksins og hinar ýmsu upplýsingar settar inn sem eru ætlaðar iðkendum, foreldrum eða  forráðamönnum. Við viljum vekja athygli á því að bloggsíðu 7.flokks karla hefur verið breytt í http://7flokkurir.blogcentral.is/ en aðrar síður haldast óbreyttar.

 

Foreldrafundir verða haldnir um miðjan október en þangað viljum við hvetja alla foreldra/forráðamenn til að mæta. Fundirnir verða tilkynntir nánar síðar með vefpósti, á bloggsíðu flokksins og á vefsíðu félagsins.

 

Þau foreldraráð sem voru starfandi á síðasta ári eru beðin að koma saman fyrir 15.október og taka saman starfsskýrslu fyrir árið. Einnig þurfa þau að skila inn þeim gögnum sem barna og unglingaráð óskar eftir. Við verðum í sambandi við aðila úr hverju foreldraráði lok þessarar viku til þess að útskýra þetta nánar.

 

Hér fyrir neðan má finna slóð á foreldrabækling KSÍ sem aðgengilegur er á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands (www.ksi.is). Bæklingurinn er á fjórum tungumálum (íslensku, ensku, pólsku og spænsku) og er það von knattspyrnudeildar ÍR að sem flestir foreldrar/forráðamenn gefi sér tíma að yfirfara og aðstoði við það mikilvæga starf sem við vinnum og með þeim hætti sem hver og einn mögulega getur!

 

 

Þeir sem hafa einhverjar spurningar, hugmyndir eða geta boðið fram aðstoð sína til að vinna að málefnum barna og unglingaráðs geta sent Halldóri Þ. Halldórssyni yfirþjálfara yngri iðkenda vefpóst á irknattspyrna@hotmail.com eða haft samband í 891-6320 fyrir kl 15:00 alla virka daga.

 

ATH    ATH   ATH   ATH   ATH   ATH   ATH   ATH   ATH   ATH    ATH    ATH    ATH

 

ÞAÐ hefur safnast mikið af fatnaði í sumar af völlunum eða úr keppnisferðum flokkanna í herbergi húsvarðar. Þeir sem sakna einhvers frá því í sumar eru beðnir að athuga með hvort þeir eigi eitthvað þar. Um miðjan október mun fatnaðurinn verða gefinn til Rauða Krossins eins og ætíð hefur verið gert þegar hann safnast upp í ÍR-heimilinu

 

Við viljum óska ykkur öllum gleðilegs knattspyrnutímabils og vonandi mun ÍR eflast og dafna á þessu knattspyrnutímabili. Við höfum marga hæfileikaríka einstaklinga hjá knattspyrnudeild ÍR og við þurfum að byggja SAMAN upp öfluga knattspyrnudeild í neðra Breiðholti.

 

 

HÉR fyrir neðan eru ýmsar vefslóðir sem vert er að athuga...

 

 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um æfingatöflu knattspyrnudeildarinnar:

http://www.irsida.is/media/PDF/Aefingatafla_Knattspyrnudeildar_20092010.pdf

 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um þjálfara flokkanna:

http://www.irsida.is/Deildir/Knattspyrna/KnattspyrnudeildIR/Thjalfarar/

 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um stefnu- og starfslýsingar:

http://www.irsida.is/Deildir/Knattspyrna/KnattspyrnudeildIR/Stefnumotun/

http://www.irsida.is/Deildir/Knattspyrna/KnattspyrnudeildIR/Starfslysingar/

 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um bloggsíður flokkanna:

http://www.irsida.is/Deildir/Knattspyrna/Bloggsidur/

 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um leyfisreglugerð KSÍ:

http://www.ksi.is/leyfiskerfi/Leyfisreglugerd/

(grein 34-37).

 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um foreldrabækling KSÍ:

http://www.ksi.is/media/fraedsla/Foreldrabaklingur_KSI_4_tungumal.pdf

 

 

 

ÁFRAM ÍR


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2009 09:56:50 / 8flir

Æfing fellur niður í dag sunnudaginn 1.mars...

Í dag sunnudaginn 1.mars fellur niður æfing 8.fl.kk og kvk vegna forfalla þjálfara. Næsta æfing verður því næstkomandi sunnudag. Í morgun þá reyndi ég að fá þjálfara til að leysa mig af  en það tókst ekki. Því sendi ég sms á alla sem ég hef númerin hjá en mig vantar gsm númer hjá 4 drengjum og því gat ég ekki sent sms.

Þessi síða verður notuð til að koma upplýsingum áleiðis til ykkar foreldranna og vonandi getið þið einnig notað hana til samskipta ykkar á milli eða til að senda mér fyrirspurn um starfsemi flokksins eða félagsins.

Með knattspyrnukveðjum.
Halldór Þ. Halldórsson

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2009 20:57:26 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 7651
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Þínir flokkar
Tenglar